email: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Lúðvík: 896 9980
Róbert Bergmann varð íslandsmeistari í tölti ungmenna 2014. Þá hafa Róbert og Brynja frá Bakkakoti landað sínum 4 íslandsmeistaratitli í tölti.
Hrifning frá Kýrholti er ný rækturnarhryssa á búinu. Hún er undan Hróðri frá Refsstöðum og Þörf frá Hólum. Þörf er systir hinna miklu kynbótahryssu Þráar frá Hólum. Undan Þörf er einnig stóðhesturinn Þokki frá Kýrholti.Hrifning ætti því að geta orðið spennandi ræktunarhryssa. Hrifning fór í kynbótadóm í vor og fékk 8.21 í aðaleinkunn þar af 8.31 fyrir hæfileika og 8.05 fyrir byggingu.
Skjálfti var sýndur há Hellu í síðustu viku. Hann fékk mjög góðan dóm eða 8.39 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag fékk hann 7.85 og 8.74 fyrir hæfileika. Hann fékk 9 fyrir skeið, vilja og fegurð í reið enda frábær gæðingur.
Kolbrá frá Bakkakoti fór kynbótadóm í maí.Hún fékk 8.22 í aðaleinkunn þar af 8.01 fyrir sköpulag og 8.36 fyrir hæfileika. Kolbrá er 5 vetra undan Blæ frá Torfunesi og Rán frá Bakkakoti. Þetta var hennar fyrsti dómur og ekki ólíkegt að hún eigi eftir að bæta sig. En að sjálfsögðu erum við bæði stolt og ánægð með þennan frábæra árangur hjá henni. Á neðri myndinni er Kolbrá nokkra daga gömul með móður sinni.