• Icelandic
  • English
News
Bakkakot
Horse Breeding
Horses for Sale
Photo Gallery
Web Links

Logo


Björt frá Bakkakoti Print E-mail
þriðjudagur, 31 ágúst 2010
bjortbjrt1Björt er 5 vetra hryssa undan Sæ og Nös frá Bakkakoti, Óðsdóttur frá Brún. Björt er eitt af okkar uppáhaldshrossum enda mikið gæðingsefni,með úrvalstölt og mjög efnilegt skeið. Við smelltum þessum myndum af henni fyrir haustfríið.
 
Suðurlandsmótið Print E-mail
fimmtudagur, 26 ágúst 2010
brynja2010Róbert keppti á Suðurlandsmótinu í tölti og fjórgangi unglinga á Brynju. Hann hafnaði í 7.sæti í fjórgangi með einkunnina 6,33 í úrslitum. Í töltinu var hann í 2.-3.sæti eftir forkeppni en sigraði að lokum með glæsibrag eftir geysiharða keppni með einkunnina 6,89.
 
Stórmót Geysis Print E-mail
mánudagur, 09 ágúst 2010
brynja2010Róbert tók þátt í unglingaflokki á Stórmóti Geysis á Brynju frá Bakkakoti. Þau lentu í 3.sæti með eikunnina 8.49 í úrslitum. Þetta má teljast góður árangur þar sem Brynja er lítið þjálfuð vegna hestaflensunnar og Róbert að stíga sín fyrstu skref í unglingflokki.
 
Skjálfti Print E-mail
fimmtudagur, 05 ágúst 2010
skjlfti2010Skjálfti var sýndur í síðustu viku og hækkað einkunn sína verulega,fékk 8.40 fyrir hæfileika. Hann fékk 9 fyrir fegurð í reið enda mjög hágengur og skrefafallegur hestur sem alltaf er að bæta sig. Skjálfti var einn af mörgum glæsilegum Sæsafkvæmum á sýningunni sem röðuðu sér í verðlaunasæti.
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Results 1 - 4 of 71

Bakkakot - Höfundarréttur Hringur @ 2007-2008 - Allur réttur áskilinn - Vistað af IceSoft hugbúnaðarhúsi 2008